„Það kalla ég rart“ - Myndlistarsýning í Pálshúsi

Myndlistarsýning í Pálshúsi , Ólafsfirði
Stefán Jónsson er íslenskur myndlistarmaður, fæddur á Akureyri 1964. Hann stundaði
myndlistarnám í Myndlista og handíðaskóla Ísland og School of Visual Arts í New York þar
sem hann útskrifaðist með MFA gráðu árið 1994.
Á myndlistarsýningunni „Það kalla ég rart“ sýnir Stefán u.þ.b. 50 myndir og 15 bómullarboli
sem hann hefur búið til á síðastliðnum 15 mánuðum. Öll verkin sýna fugla sem eru algengir í
íslenskri náttúru. Verkin eru unnin út frá ljósmyndum sem skornar eru í vínylfilmu og límdar
á tréplötur af ýmsu tagi eða pressaðar á pappír eða bómullarboli.
Titill sýnigarinnar er fenginn úr Íslandsklukku Halldórs Laxness og lýsir viðbrögðum Jóns
Guðmundssonar Grindvíkings þegar Jón Hreggviðsson tjáir honum að sést hafi fuglar í loftinu
á Íslandi.
Sýningin verður opnuð í Pálshúsi á Ólafsfirði þann 25. júní og stendur til 25. júlí.